Íslenska
profiBONE
Þróun lífvirks fjölliðu-keramikefnis fyrir lághitaþrívíddarprentun.
VERKEFNISTENGILIÐIR
GISSUR ÖRLYGSSON
gissur@taeknisetur.is
522 9193
Markmið verkefnisins er að bæta aflræðilega eiginleika, niðurbrots- og græðihegðun, og bakteríuhamlandi eiginleika prentaðra ígræða með því að umbreyta keramísku sementi með bindiefnum sem byggjast á lífbrjótanlegum efnasmíðuðum fjölliðum, lífvirkum fjölsykrum og próteinum. Afrakstur verkefnisins verður á formi nytjamódela sementsefna sem henta til þrívíddarprentunar á ígræðum með stillanlega aflfræðilega eiginleika og aukna lífvirkni, sem og á formi prentaðs hvirfilbeins með aukna lífvirkni. Virkni verður verður sannreynd í dýratilraunum með ígræðslu prentaðs hvirfilbeins.
Timalengd verkefnis: 2021- 2023
Hluti í verkefninu
- Þátttaka í þróun beinsementsuppskriftar.
- Þátttaka í þróun og greiningu efna- og eðliseiginleika sements og prentaðra hluta.
- Röntgensneiðmyndataka og magngreining beinmyndunar og upptöku ígræða.
- Lífaflfræðilegar mælingar.
Samstarfsaðilar
- Genis hf. (IS)
- CEITEC - Central European Institute of Technology BUT (CZ)
- Charles University, Biomedical Centrum (CZ)
- Tæknisetur ehf. | IceTec (IS)
Þakkir
Verkefnið er styrkt af KAPPA áætluninni sem er fjármögnuð af EEA Grants og er í umsjá TACR (CZ)